Fyrir suma getur samskiptasíðan Facebook verið jafn ávanbindandi og fíkniefni. Vísindamenn hafa því hannað einfalt próf sem ætti að gefa fólki hugmynd um hvort það sé orðið háð samskiptaforritinu Facebook. Prófið er ekki hávísindalegt að þeirra sögn en á þó að geta dregið skýr mörk á milli þeirra sem gætu talist háðir og hinna hefðbundnu notenda.
Prófið er byggt á sama kerfi og læknar nota til að koma auga á alkóhólista og eiturlyfjafíkla, að því er fram kemur í læknatímaritinu Psychological Reports.
Vísindamennirnir sem hönnuðu prófið stunda sínar rannsóknir við háskólann í Björgvin í Noregi. Þeir settu saman spurningalista til þess að koma auga á Facebook-fíkn á meðal 423 nemenda við skólann.
Áður hafði verið framkvæmd könnun á meðal nemenda í háskólanum í Gautaborg, Svíþjóð, en þar kom fram að 85 prósent þátttakenda notuðu síðuna daglega og helmingur þeirra sögðust opna síðuna um leið og þeir færu á Netið.
Helmingur þeirra sögðust hafa áhyggjur af því að vita ekki hvað væri að gerast ef þeir væru ekki á síðunni og fjórðungur sagðist finna fyrir óeirð ef þeir kæmust ekki reglulega á síðuna.
Útkoman á meðal nemenda við háskólann í Björgvin, sem tóku prófið, gáfu til kynna að Facebook-fíkn sé algengari á meðal kvenna en karla.
Þeir sem eru kvíðnir og óöruggir eru líklegri til að þróa með sér Facebook-fíkn því þeir þora síður að hefja samræður við fólk út í hinum raunverulega heimi, því er Facebook hentugur kostur fyrir þá.
Það er sálfræðingurinn Cecilie Schou Andreassen sem hannaði Björgvins-prófið en hún segir þá notendur Facebook sem fara seint að sofa og sofi fram eftir séu líklegri til að vera háðir Facebook.
Prófið
Prófið byggist á sex spurningum og fá þeir sem taka það fimm svarmöguleika: 1 = Mjög sjaldan; 2 = Sjaldan; 3 = Stundum; 4 = Oft og 5 = Mjög oft.
Spurningarnar eru:
1. Þú hugsar mikið um Facebook og skipuleggur notkun þína á síðunni.
2. Þú finnur fyrir þörf að nota Facebook.
3. Þú notar Facebook til að gleyma persónulegum vandamálum.
4. Þú hefur reynt að draga úr Facebook-notkuninni án árangurs.
5. Þú finnur fyrir óeirð ef þú kemst ekki á Facebook.
6. Facebook notkunin kemur niður á vinnu eða námi.
Ef svarið var Oft eða Mjög oft við að minnsta kosti fjórum af sex spurningum er hætt við að viðkomandi sé haldinn Facebook-fíkn.









Facebook
YouTube