Glæpasamtök græða á netsvindli

Khoo Boon Hui, yfirmaður Interpol. Mynd:Nordic Photos/AFP

Skipulögð glæpasamtök standa á bakvið flest svik og svindl á netinu og er skaðinn af slíkri iðju meiri en samanlagður kostnaður af baráttunni gegn smygli og sölu á heróíni, kókaíni og kannabisefnum. Þetta segir Khoo Boon Hui, yfirmaður alþjóðalögreglunnar Interpol.

Khoo ávarpaði ráðstefnu Interpol í Tel Aviv í Ísrael í gær og vitnaði í skýrslu bresku lögreglunnar þar sem segir að skipulögð glæpasamtök standi á bakvið 80 prósent glæpa í netheimum. Glæpasamtök telji þetta ábatasamari iðju en ýmsa aðra glæpi, eins og smygl og sölu á fíkniefnum. Kostnaðurinn af netglæpum hefði numið jafnvirði rúmlega 120 milljarða króna í Evrópu á síðasta ári, þar á meðal af völdum ólöglegrar veðlánastarfsemi, banka- og greiðslukortasvika.

Khoo sagði að bandarískir bankar hefðu tapað 900 milljónum dollara, jafnvirði um 113 milljarða króna vegna hefðbundinna glæpa og svika á síðasta ári, en tjón þeirra af skipulögðum netsvikum hefði numið 12 milljörðum dollara, jafnvirði um 1.500 milljarða króna. Khoo varaði við hættu á árásum á öryggiskerfi ríkja og sagði að svokallaður Anonymous-hópur tölvuþrjóta hefði meðal annars ráðist á tölvukerfi Interpol.

Fréttir

21.6
2012

kl. 12:39

SAFT og netöryggi

Sex krakkar úr ungmennaráði SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) eru nýkomin af ráðstefnu um netöryggi sem haldin var í Stokkhólmi. Eitt þeirra, Diljá Helgadóttir mætti í Morgunútvarpið, sem og Hrefna Sigurjónsdóttir frá Heimili og Skóla, en hún fylgdi krökkunum til Svíþjóðar. SAFT er verkefni á vegum samtakanna Heimili og Skóli og snýst um netöryggi. Því er [...]

31.5
2012

kl. 14:10

Nýr leikur um örugga netnotkun á paxel123.com

Vorum að setja inn á vefinn lítinn leik um örugga netnotkun. Þetta er einfalt teningaspil með myndrænum skilaboðum um það hvernig best sé að haga sér á netinu. Leikurinn er kominn inn á íslenska hluta vefsins og verður kominn á öll tungumál í kvöld eða á morgun. We´ve just put a little game on the web [...]

10.5
2012

kl. 13:58

Facebook opnar „app“ verslun

App Center, forritaverslun Facebook, var kynnt í dag og verður aðgengileg snjallsímanotendum um allan heim á næstu vikum. Facebook opnaði í dag „app” verslun, þar sem hægt er að nálgast smáforrit virka samhliða samskiptavefnum. Talsmenn Facebook segja að verslunin App Center eigi að verða „nýr, miðlægur staður til að finna frábær öpp”, s.s. Pinterest, Spotify, [...]

Hjálparsíminn 1717 - Netspjall

Smelltu á boxið til að opna spjallið.

Myndbönd

SAFT SAFT SAFT SAFT SAFT