ÍSLENSKUR KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR FJÁRMAGNAR ÚTSKRIFTARMYND SÍNA Á NETINU

Haukur M, kvikmyndagerðamaður notar veraldarvefinn til að fjármagna næstu stuttmynd sína, Hola í Vegg, stuttmynd um einelti unglinga og hvernig Internetið hefur breytt hegðun ungs fólks. Með aðeins 30 daga til stefnu vill Haukur draga athygli að þessari nýstárlegu fjármögnunarleið og hvetur fólk til að taka þátt í að gera gott bíó.

Lodz í Póllandi – 29.apríl, 2012. Kvikmyndagerðamaðurinn Haukur M beitir óhefðbundnum aðferðum við að fjármagna útskriftarmynd sína frá hinum virta Polish National Filmschool, skóli sem oftast er kenndur við leikstjóra á borð við Roman Polanski og Krzystof Kieslowski. Þar sem fjármögnun er fyrsta hindrun leikstjóra til þess að koma mynd í framleiðslu og þar sem núverandi efnahagsaðstæður hjálpa ekki til við það ferli, hafa kvikmyndagerðamenn þurft að endurhugsa það og koma upp með nýjar hugmyndir til að fjármagna verkefni sín. Kvikmyndagerðamenn um allan heim hafa tekið höndum saman og notast við öflugar síður á borð við Indiegogo.com til þess að koma verkefnum sínum á framfæri og þannig virkja almenning í þróunarferli kvikmyndarinnar.

Samkvæmt reglum Indiegogo.com hafa listamenn ákveðinn tíma til að fjármagna heildarupphæð verkefnisins, ef það markmið næst ekki á tilsettum tíma þá fær verkefnið ekkert fjármagn. Stuttmyndin hans Hauks hefur 30 daga frá upphafi fjármögnunarinnar til enda og stefnt að því að safna 22.000$ (2.7 millj. ISK ). Ef því marki verður ekki náð fyrir 27. maí þá falla öll áheit niður og kvikmyndin verður því miður ekki fjármögnuð.

Þegar Haukur er spurður af hverju vefsíðan Indiegogo varð fyrir valinu, svarar Haukur, ,,Til þess að koma skilaboðum á skjótan og öruggan hátt til fjölda fólks á netinu, og með því að geta haldið því upplýstu um framvindu verkefnisins, en það er virkilega ómetanlegt.“  og gerir listamönnum kleift að safna peningum hvaðan sem er úr heiminum.

Hola Í Vegg fjallar um ungan átján ára strák sem missir ungan bróður sinn til sjálfsmorðs. Orsökin fyrir þessum harmleik virðist rekja rætur sínar til eineltis, en þá sérstaklega vegna hræðilegs myndbands sem dreifðist hratt út á netinu. Aðalpersónan verður heltekin af því að finna þá sem bera ábyrgð á gerð myndbandsins á undan yfirvöldum, hann ræðst jafnvel á þá sem eiga hina  minnstu sök í leit sinni af sannleikanum. Hann neitar að gera sér grein fyrir hvaða þátt hann hafi í málinu. Hann grefur sektarkennd sína um að hann hafi ekki verið nógu góður bróðir undir meiri árásargirni sem dregur hann lengra inn í svartnættið.

Kvikmyndin verður tekin upp í pólsku borginni Lodz, sem er þriðja stærsta borg Póllands og var eitt sinn ein stærsta iðnaðarborg í Evrópu. Myndin verður tekin upp á á RED EPIC myndavél og síðan yfirfærð á 35mm filmu. Ef Haukur nær takmarki sínu um fjármögnun þá ætlar hann að vera með fullkláraða mynd í lok september. Til að fræðast meira um verkefnið geta áhugasamir skoðað Indiegogo heimasíðu verkefnisins en þar getur þú lesið sig til og tekið þátt.

http://igg.me/p/89526?a=531057

http://www.facebook.com/HoleInTheWallTheMovie

Um Hauk:

Haukur M hefur í mörg ár unnið að sjálfstæðri kvikmyndagerð en fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd var (Ó)eðli (1999), sem hann fjármagnaði að fullu sjálfur. Síðan þá hefur Haukur gert myndir í fullri lengd, stuttmyndir, heimildarmyndir, tónlistarmyndbönd og auglýsingar. Síðastliðinn 3 ár hefur Haukur verið í leikstjórnarnámi ásamt eiginkonu sinni Ástu Júlíu Guðjónsdóttur sem er að læra kvikmyndatöku í sama skóla. Haukur og Ásta vinna náið saman og hafa seinustu samstarfsverkefni þeirra gengið einstaklega vel á kvikmyndahátíðum og unnið til nokkurra verðlauna, þar á meðal á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.

 

Contact:

Haukur M

haukurm@gmail.com

+48 516424707

Fréttir

21.6
2012

kl. 12:39

SAFT og netöryggi

Sex krakkar úr ungmennaráði SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) eru nýkomin af ráðstefnu um netöryggi sem haldin var í Stokkhólmi. Eitt þeirra, Diljá Helgadóttir mætti í Morgunútvarpið, sem og Hrefna Sigurjónsdóttir frá Heimili og Skóla, en hún fylgdi krökkunum til Svíþjóðar. SAFT er verkefni á vegum samtakanna Heimili og Skóli og snýst um netöryggi. Því er [...]

31.5
2012

kl. 14:10

Nýr leikur um örugga netnotkun á paxel123.com

Vorum að setja inn á vefinn lítinn leik um örugga netnotkun. Þetta er einfalt teningaspil með myndrænum skilaboðum um það hvernig best sé að haga sér á netinu. Leikurinn er kominn inn á íslenska hluta vefsins og verður kominn á öll tungumál í kvöld eða á morgun. We´ve just put a little game on the web [...]

10.5
2012

kl. 13:58

Facebook opnar „app“ verslun

App Center, forritaverslun Facebook, var kynnt í dag og verður aðgengileg snjallsímanotendum um allan heim á næstu vikum. Facebook opnaði í dag „app” verslun, þar sem hægt er að nálgast smáforrit virka samhliða samskiptavefnum. Talsmenn Facebook segja að verslunin App Center eigi að verða „nýr, miðlægur staður til að finna frábær öpp”, s.s. Pinterest, Spotify, [...]

Hjálparsíminn 1717 - Netspjall

Smelltu á boxið til að opna spjallið.

Myndbönd

SAFT SAFT SAFT SAFT SAFT