Snjallsímar í stað kreditkorta

snjallsimar

Arion banki skrifaði nýverið undir samstarfssamning við Valitor um innleiðingu á nýrri snjallkortatækni sem hefur í för með sér að hægt verður að greiða kreditgreiðslur með snjallsíma, snertilaust við posabúnað.

Hér er um nýja tækni að ræða sem getur í framtíðinni leyst kreditkort af hólmi eins og við þekkjum þau í dag en verkefnið er þó enn á tilraunastigi, segir í tilkynningu.

„Arion banki er einn stærsti útgefandi kreditkorta hér á landi en sú tækni sem samstarfið felur í sér gerir fólki kleift að greiða fyrir vöru eða þjónustu með kreditkorti sínu úr farsímanum. Kreditkortaupplýsingum er komið fyrir á SIM korti í snjallsímum og notast er við svokallaða NFC tækni (Near Field Communication) til að framkvæma greiðsluna. Undirbúningur er hafinn og í haust er áætlað að fyrstu símtækin sem bjóða upp á þessa tækni fari í prófanir,“ segir í tilkynningu.

Fréttir

21.6
2012

kl. 12:39

SAFT og netöryggi

Sex krakkar úr ungmennaráði SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) eru nýkomin af ráðstefnu um netöryggi sem haldin var í Stokkhólmi. Eitt þeirra, Diljá Helgadóttir mætti í Morgunútvarpið, sem og Hrefna Sigurjónsdóttir frá Heimili og Skóla, en hún fylgdi krökkunum til Svíþjóðar. SAFT er verkefni á vegum samtakanna Heimili og Skóli og snýst um netöryggi. Því er [...]

31.5
2012

kl. 14:10

Nýr leikur um örugga netnotkun á paxel123.com

Vorum að setja inn á vefinn lítinn leik um örugga netnotkun. Þetta er einfalt teningaspil með myndrænum skilaboðum um það hvernig best sé að haga sér á netinu. Leikurinn er kominn inn á íslenska hluta vefsins og verður kominn á öll tungumál í kvöld eða á morgun. We´ve just put a little game on the web [...]

10.5
2012

kl. 13:58

Facebook opnar „app“ verslun

App Center, forritaverslun Facebook, var kynnt í dag og verður aðgengileg snjallsímanotendum um allan heim á næstu vikum. Facebook opnaði í dag „app” verslun, þar sem hægt er að nálgast smáforrit virka samhliða samskiptavefnum. Talsmenn Facebook segja að verslunin App Center eigi að verða „nýr, miðlægur staður til að finna frábær öpp”, s.s. Pinterest, Spotify, [...]

Hjálparsíminn 1717 - Netspjall

Smelltu á boxið til að opna spjallið.

Myndbönd

SAFT SAFT SAFT SAFT SAFT